Námskeið: Markmiðasetning og jákvæð sálfræði

  • 23.1.2023, 13:00 - 15:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeiðið verður mánudaginn 23. janúar kl. 13:00-15:00 og er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.

Allir þátttakendur fá eintak af dagbókinni MUNUM sem er hönnuð með það að leiðarljósi að hámarka líkur á árangri og efla jákvæða hugsun.

  • Leiðbeinendur eru Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur og Þóra Hrund Guðbrandsdóttir markaðsfræðingur.
  • Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Þátttökugjald er 4.990 kr.

Vinsamlegast greiðið í afgreiðslu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 og þar fáið þið afhent eintak af dagbókinni.


Var efnið hjálplegt?