Námskeið: Jóga Nidra og hljóðslökun 3/4
Námskeiðið hófst föstudaginn 7. janúar kl.11:00-11:50 og er vikulega í fjögur skipti og ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina.
Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.
Leiðbeinendur eru Laufey Steindórsdóttir og Þórey Viðarsdóttir, jógakennarar
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.