Námskeið: Jóga Nidra djúpslökun

  • 25.1.2019, 11:00 - 12:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeiðið hefst föstudaginn 25. janúar kl.11:00 – 12:00 og verður vikulega í fjögur skipti. Ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Einnig kemur tónheilun við sögu. Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 . Þátttökugjald er 2.000 kr.

Leiðbeinendur eru Laufey Steindórsdóttir og Þórey Viðarsdóttir, jógakennarar.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?