Námskeið: Jóga Nidra djúpslökun

  • 18.5.2018, 11:00 - 12:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeiðið hefst föstudaginn 18. maí kl.11:00 – 12.00 og verður vikulega í fjögur skipti. Ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Einnig mun tónheilun koma við sögu.

Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Þátttökugjald er 3.000 kr.

Leiðbeinendur eru Þórey Viðarsdóttir og Laufey Steindórsdóttir, jógakennarar.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?