Námskeið: Hugleiðsla og sjálfsstyrking fyrir börn 6-9 ára (3 af 3)

  • 22.8.2023, 15:00 - 16:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeið fyrir börn á aldrinum 6-9 ára þar sem aðstandandi hefur greinst með krabbamein.

Hugleiðslan og þær aðferðir sem kenndar verða í tímunum miða að því að skapa innra jafnvægi og styrkja sjálfsmyndina. Aðgangur til lífstíðar á vefsíðunni heillarstjarna.is fylgir með þátttöku en síðan býður upp á fjölbreyttar hugleiðslu og slökunaræfingar fyrir börn.

Námskeiðið hófst 8. ágúst og er vikulega í þrjú skipti á þriðjudögum kl. 15:00-16:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8. Ekkert þátttökugjald.

Leiðbeinandi er Stefanía Ólafsdóttir, hugleiðsluleiðbeinandi og grunnskólakennari.


Var efnið hjálplegt?