Námskeið: Hugleiðsla og sjálfsstyrking fyrir börn 10-13 ára (1 af 3)

  • 8.8.2023, 16:15 - 17:15, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeið fyrir börn á aldrinum 10-13  ára þar sem aðstandandi hefur greinst með krabbamein.

Hugleiðslan og þær aðferðir sem kenndar verða í tímunum miða að því að skapa innra jafnvægi og styrkja sjálfsmyndina. Aðgangur til lífstíðar á vefsíðunni heillarstjarna.is fylgir með þátttöku en síðan býður upp á fjölbreyttar hugleiðslu og slökunaræfingar fyrir börn.

Námskeiðið hefst 8. ágúst og er vikulega í þrjú skipti á þriðjudögum kl. 16:15-17:15 í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8. Ekkert þátttökugjald.

Leiðbeinandi er Stefanía Ólafsdóttir, hugleiðsluleiðbeinandi og grunnskólakennari.


Var efnið hjálplegt?