Námskeið: Bjargráð við kvíða

  • 4.4.2022, 17:00 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 11.4.2022, 17:00 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hvernig koma megi auga á streituviðbrögð og langvarandi kvíða. Auk þess verður farið yfir nokkur hagnýt bjargráð til að takast á við kvíða og streitu í daglegu lífi.

Námskeiðið hefst 4. apríl og er vikulega í tvö skipti á mánudögum kl.17:00 – 18:30. Ekkert þátttökugjald.

Umsjón með námskeiði hefur Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur.

 


Var efnið hjálplegt?