Námskeið: Að setja saman vísur

  • 5.4.2016, 14:00 - 15:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Þriðjudagana 5. og 12. apríl 2016 kl. 14:00-15:30 verður námskeið í bragfræði og vísnagerð í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.

Leiðbeinandi er dr. Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku, hagyrðingur og fv.háskólakennari. Hann hefur gefið út margar ljóðabækur og samið kennslubækur um bragfræði.

Ragnar mun fara yfir helstu reglur um vísnagerð og leiðbeina þátttakendum að setja saman sína eigin vísur.
Skráning er í síma 800 4040 eða á netfangið radgjof@krabb.is. Ekkert þátttökugjald.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9-16. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?