Námskeið: Mín leið að lokinni meðferð við brjóstakrabbameini 2/4
Námskeiðið hófst 7. mars og er vikulega í fjögur skipti, þrjár klukkustundir í senn. Það fer fram á fimmtudögum kl. 9:30-12:30 í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Um námskeiðið
Námskeiðið „Moving Forward“ var upphaflega þróað af samtökunum ,,Breast Cancer Care” í Bretlandi. Haldin hafa verið um 230 námskeið á rúmlega 30 stöðum í Bretlandi og yfir 2.700 konur hafa tekið þátt. Mikil ánægja hefur verið með þessi námskeið þarlendis.
Megintilgangur námskeiðsins er að þátttakendur hitti aðra í svipuðum sporum ásamt því að fá stuðning og fræðslu um ýmslegt sem konur eru að upplifa að lokinni krabbameinsmeðferð.
Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu fylgikvilla meðferða, upplýsingar eru veittar um þá stuðningsþjónustu sem í boði er, hvatt er til heilbrigðs lífsstíls og valdeflingar og dregið úr einangrun með jafningjastuðningi.
Dæmi um efni sem tekið er fyrir á námskeiðinu: Mataræði, hreyfing, einkenni tíðahvarfa, sogæðabjúgur, merki og einkenni sem mikilvægt er að þekkja, krabbameinstengd þreyta, kynheilbrigði, streita, slökunarleiðir ásamt mörgu fleiru sem snýr að lífinu eftir greiningu og meðferð brjóstakrabbameins.
Umsjón með námskeiðinu hafa krabbameinshjúkrunarfræðingur og fulltrúi frá Brjóstaheill – Samhjálp kvenna ásamt gestafyrirlesurum sem eru sérfræðingar hver á sínu sviði.
- Ætlað konum sem hafa greinst með brjóstakrabbamein og æskilegt er að ekki séu liðin meira en tvö ár frá meðferðarlokum.
- Mikilvægt er að mæta í alla fjóra námskeiðshlutana.