Nám­skeið fyrir stuðnings­fulltrúa

  • 29.10.2018, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Kraftur og Ráðgjafarþjónustan halda námskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsnetinu.

Námskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsneti Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður haldið mánudagana 29. október og 05. nóvember, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira. Mælst er til þess að liðin séu a.m.k. tvö ár frá því að meðferð lauk en hvert tilfelli er metið fyrir sig.

Boðið verður upp á kvöldverð og mun Kraftur taka þátt í bensínkostnaði fyrir þá sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu og þurfa að ferðast lengri vegalengdir til þess að komast á námskeiðið.

Námskeiðið er bæði ætlað krabbameinsgreindum og aðstandendum en við vekjum athygli á að okkur vantar sérstaklega fleiri aðstandendur og karlmenn í stuðningsnetið.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður stuðningsnets Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.

Nánari upplýsingar í síma 866 9618.

Mánudagana 29. október og 5. nóvember 2018 kl. 17:00-21:00.

Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur.

Skráning á salfraedingur@kraftur.org eða í síma 866 9618. Ekkert þátttökugjald.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?