Nám­skeið: Ert þú með bjúg á hand­legg?

  • 20.2.2019, 16:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl.16:00-18:00 er námskeið um bjúg á handlegg í kjölfar krabbameinsmeðferðar í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.

Námskeiðið verður í þrjú skipti, einu sinni í viku. Markmiðið er að auka þekkingu og færni til að bregðast við sogæðabjúg. Áhersla á verklegar æfingar m.a. sjálfsnudd og æfingar.

Leiðbeinendur eru Marjolein Roodbergen og María Björk Ólafsdóttir sjúkraþjálfarar.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma  800 4040.  Ekkert þátttökugjald.

Þegar byrjaði á námskeiðinu var ég með töluverðan bjúg á vinstri hendi. Strax eftir fyrstu kennslustund sá ég breytingu. Þegar mætti kennslustund nr.2 þá var ég komin með úrið mitt á frá hægri handlegg yfir á vinstri handlegg. Hefði ekki trúað að námskeiðið gæti haft svona mikil og jákvæð áhrif. 

Hulda Cathinca Guðmund sótt þetta námskeið í október 2018

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?