Mottumarsviðburður As We Grow

  • 15.3.2024, 17:00 - 19:00


As We Grow hönnuðir Mottumarssokkana í ár standa fyrir Mottumarsviðburði í verslun sinni að Klapparstíg 29, föstudaginn 15. mars kl. 17:00-19:00. Öll velkomin.

Við erum hæstánægð með þetta vel heppnaða samstarf og blásum til fagnaðar í tilefni þess.

https://youtu.be/S2frQ4Q1XU8
Gestum verður boðið upp á ljúfa tóna og léttar veitingar og að sjálfsögðu verða glæsilegu Mottumarssokkarnir til sölu á staðnum.

Hönnun sokkanna byggir á Mottumarsskegginu sem hefur í ár tekið á sig abstrakt yfirbragð og myndar glaðlegt símynstur í hinu hefðbundna litaþema átaksins. Símynstrið vísar í þá staðreynd að einn af hverjum þremur karlmönnum greinist einvhern tímann á lífsleiðinni með krabbamein.

Allur ágóði af sölu Mottumarssokkana rennur til  starfsemi Krabbameinsfélagsins, sjá nánari upplýsingar hér.

"Kallaútkall - Öll hreyfing gerir gagn"

Hlökkum til að sjá ykkur!


Var efnið hjálplegt?