Akureyrir og nágrenni: Kótilettukvöld & uppboð

  • 5.3.2020, 19:00 - 23:00, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis

Kótilettukvöld & uppboð kl. 19:00

Í beinu framhaldi af málþinginu verður Eyrin, veitingastaður í Hofi, með kótilettukvöld þar sem allur ágóði rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Veislustjóri verður vandræðaskáldið Vilhjálmur Bragason sem kemur einnig til með að stýra uppboði á ýmsum varning til styrktar Krabbameinsfélaginu.

Verð á mann er 5.000,- kr. drykkir seldir sér. Bókanir eru í síma 460-0660 eða í gegnum þennan link.

Sjá viðburðinn á Facebook þar sem hægt verður að fylgjast með hvaða græjur og dót verða á uppboðinu.

Kótilettukvöldið er styrkt af Sölufélagi Garðyrkjumanna, Mjólkursamsölunni og Ásbjörn Ólafsson ehf.


Var efnið hjálplegt?