Hádegisfyrir­lestur: Áfallamiðað jóga

  • 6.9.2017, 12:00 - 12:50

Miðvikudaginn 6. september kl. 12:00-12:50 kemur Margrét Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari, jógakennari og sálmeðferðarfræðingur MSc. og heldur hádegisfyrirlestur um áfallamiðað jóga. Hún mun fjalla um hvernig það getur nýst fólki með krabbamein og aðstandendum þess. 

Í framhaldi mun Ráðgjafarþjónustan bjóða upp á 8 skipta jóganámskeið, skráning á radgof@krabb.is eða í s. 800 4040.

Ilmandi brauð frá Brauðhúsinu Grímsbæ og viðbit frá Mjólkursamsölunni. Allir velkomnir og skráning óþörf.


Var efnið hjálplegt?