Hádegis­fyrir­lestur: Krabba­mein karla – hvað er hægt að gera til að minnka áhættuna?

  • 4.3.2020, 12:00 - 12:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 4. mars 2020 kl.12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar. Allir velkomnir.

Jóhanna Torfadóttir næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum mun fjalla um helstu krabbamein sem karlar greinast með og hvaða ráðleggingar um mataræði og hreyfingu eru gefnar – bæði til að fyrirbyggja krabbamein sem og eftir greiningu.

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og smjör/ost frá Mjólkursamsölunni.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?