Hádegis­fyrir­lestur: Hvað er bólgu­hemjandi fæði?

  • 23.10.2019, 12:00 - 12:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 23. október 2019 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.

Langvinnar bólgur í líkamanum geta aukið líkur á krabbameinum, meðal annars í ristli. Í hádegisfyrirlestrinum fjallar Birna Þórisdóttir næringarfræðingur um hvernig mataræði og ákveðnar fæðutegundir geta ýmist aukið bólgur eða hamið.

Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og smjör/ost frá Mjólkursamsölunni.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.


Var efnið hjálplegt?