Hádegisfyrirlestur: Gönguleiðir í nágrenni Reykjavíkur
Miðvikudaginn 15. maí 2019 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafar-þjónustunnar.
Einar Skúlason frumkvöðull, rithöfundur, leiðsögumaður og eigandi Wapp-Walking app mun fjalla um þau forréttindi Íslendinga að þurfa sjaldnast að fara langar leiðir til að komast á ósnortið landsvæði. Kynnir okkur fyrir fjölbreyttum gönguleiðum í nágrenni Reykjavíkur.
ALLIR VELKOMNIR!
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og smjör/ost frá Mjólkursamsölunni.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.