Göngum saman á mæðradaginn 14. maí
Göngum saman stendur fyrir árlegri göngu á mæðradaginn í Reykjavík.
Gangan í ár verður sunnudaginn 14. maí k. 11:00 og gengið verður frá Háskólatorgi.
Hittumst á Háskólatorgi og gleðjumst saman. Hittum íslenska vísindamenn sem leita lækninga á brjóstkrabbameini og styrkjum starf þeirra. Kíkjum á skemmtilegan varning og hlutaveltu.
Húsið opnar kl. 10. Gangan hefst kl. 11.
Syngjum og tröllum, sláum taktinn.
Göngum saman á mæðradaginn í Reykjavík - viðburður á Facebook.