Góðir hálsar - góður gestur

  • 1.2.2017, 17:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðar-legan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 1. febrúar kl. 17:00.

Á fundinn kemur Ómar Ragnarsson og ætlar að segja hópnum frá ýmislegu sem á hans daga hefur drifið.

Fundurinn er ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?