• Mynd: freedigitalphotos.net
    Mynd: freedigitalphotos.net

Góðir hálsar - rabbfundur

  • 4.10.2017, 17:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 4. október kl. 17:00.

Gestur fundarins verður Ásgeir R. Helgason fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Ásgeir lauk doktorsprófi frá Karolinska læknaháskólanum (institutet) í Stokkhólmi 1997. Rannsóknarefnið var krabbameini í blöðruhálskirtli. Flestar rannsóknirnar sneru að aukaverkunum mismunandi meðferða og hvað væri unnt að gera við þeim, aðallega kynlífstengdum vandamálum. 

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?