Fjarnámskeið: Markmiðasetning og jákvæð sálfræði
Námskeiðið er miðvikudaginn 13. janúar 2021 kl. 13:00-15.00.
Allir þátttakendur fá eintak af dagbókinni MUNUM sem er hönnuð með það að leiðarljósi að hámarka líkur á árangri og efla jákvæða hugsun.
Leiðbeinandi eru Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur og Þóra Hrund Guðbrandsdóttir markaðsfræðingur.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 . Þátttökugjald er 4.500 kr.og bókin innifalin í verðinu. Hægt er að greiða námskeiðsgjaldið í afgreiðslu Krabbameinsfélagsins
í Skógarhlíð 8 og fá afhent eintak af MUNUM dagbókinni eða í vefverslun Krabbameinsfélagsins og fá bókina senda eða sækja í afgreiðslu.
- Þátttakendur fá sendar nánari upplýsingar þegar nær dregur því er nauðsynlegt að skrá sig.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040 . Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.