Akureyri: Stuðningur og ráðgjöf

  • 31.1.2022, 9:00 - 16:00, Krabbameinsfélaga Akureyrar og nágrennis

Starfsmaður frá Krabbameinsfélaginu, Sigrún Lillie Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur og handleiðari er á Akureyri 31.janúar og býður upp á einstaklingsviðtöl í húsnæði KAONS Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Viðtölin eru fólki að kostnaðarlausu.

Hafir þú þörf fyrir ráðgjöf og stuðning varðandi það sem þú ert að upplifa í veikindum tengt krabbameini hvort heldur sem er, að þú hafir greinst með krabbamein eða ert aðstandandi þá er þér velkomið að panta tíma.


Var efnið hjálplegt?