Aðalfundur Krafts

  • 24.4.2018, 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Aðalfundur Krafts verður haldinn þriðjudaginn 24. apríl í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 og hefst kl. 18:00. 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs.
3. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
4. Lagabreytingar.
5. Kjör tveggja manna í stjórn til tveggja ára og tveggja varamanna til eins árs.
6. Kjör þriggja fulltrúa í stjórn Neyðarsjóðsins
7. Kjör löggilts endurskoðanda reikninga félagsins.
8. Ákvörðun um félagsgjald
9. Önnur mál.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn. 

Óskað er eftir framboðum til stjórnar samkvæmt dagskrá. Sem fyrr segir er óskað eftir tveimur aðalmönnum í stjórn og tveimur varamönnum. 

Framboð skulu berast til framkvæmdastjóra á netfangið hulda@kraftur.org þar sem fram kemur nafn, kennitala og upplýsingar um viðkomandi. 

Framboð skulu berast eigi síðar en sunnudaginn. 22. apríl. 

Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á aðalfund Krafts. 


Kær kveðja,
stjórn og starfsfólk Krafts


Var efnið hjálplegt?