Krabba­meins­frumur feli sig fyrir ónæmis­kerfinu

Erna Magnúsdóttir rannsakar ferla sem auka skilvirkni ónæmiskerfisins í að drepa æxlisfrumur.

Waldenströmssjúkdómur er sjaldgæfur sjúkdómur. Um 3 milljónir einstaklinga eru greindir með Waldenströmssjúkdóm á hverju ári í heiminum, en sjúkdómurinn er ólæknandi hægfara krabbamein B-eitilfruma. 

Erna Magnúsdóttir sameindalíffræðingur og dósent við Læknadeild Háskóla Íslands hefur einbeitt sér mjög að sjúkdómnum síðustu ár. Verkefnið Sameindaferlar að baki BLIMP1 og EZH2 miðlaðri lifun í Waldenströmsæxlum hefur hlotið styrki úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins styrki í þrígang: 10 milljónir kr. árið 2019, 6 milljónir kr. árið 2018 og 5 milljónir kr. árið 2017.

Fyrstu árin fóru í að kanna genastjórnun og mögulega samverkan stjórnpróteinanna BLIMP1 og EZH2 í Waldenströms-æxlisfrumum, sem Erna taldi líklegt að væru nauðsynlegir þættir fyrir lifun frumanna og því möguleg lyfjamörk. Þegar þau voru að rannsaka þessa þætti komust þau meðal annars að því að þeir stjórna því hvort krabbameinsfrumurnar geti falið sig fyrir ónæmiskerfinu. Það var óvænt uppgötvun en mikilvæg og niðurstöðurnar fengust birtar í virtu alþjóðlegu vísindatímariti, sjá hér.  

Við höfum með hjálp styrkja frá Krabbameinsfélaginu uppgötvað þætti sem hafa áhrif á það hvort frumur sjúkdómsins lifi eða deyi meðal annars í samhengi við ónæmismeðferð.“

Síðasta árið fór í að rannsaka nánar áhrif þessara þátta á eftirlit með frumuskiptingu með það í huga að skilja betur hvernig má koma í veg fyrir að frumur sjúkdómsins lifi af.

Stuðningur Krabbameinsfélagsins við þetta verkefni hefur skipt sköpum fyrir okkur og hjálpað okkur að afhjúpa ferla sem auka skilvirkni ónæmiskerfisins í að drepa æxlisfrumur. Það er von okkar að þessar niðurstöður leiði til fjölbreyttari meðferðarmöguleika í sjúkómnum.“

Í myndbandinu segir Erna frá verkefninu þegar hún tók við fyrsta styrknum árið 2017.

https://youtu.be/8V54QNVlQFw