Spurningabanki til að bæta samskipti

Nanna Friðriksdóttir rannsakar hvort nota megi spurningabanka til að bæta samskipti um meðferð einkenna og líðan

Rannsóknarhópur í Krabbameinsþjónustu Landspítala í samstarfi við bandarísku krabbameinsstofnunina NCI metur íslenska þýðingu á spurningabanka NCI sem ætlaður er sjúklinginum til þess að leggja sjálfir mat á líðan sína. Spurningabankinn inniheldur spurningar um 78 einkenni og aukaverkanir sem geta fylgt krabbameini og krabbameinsmeðferð. Hann er þróaður hjá NCI og hefur verið þýddur á mörg tungumál. Með markvissri notkun spurninga úr þessu spurningasafni er hægt að bæta samskipti um meðferð einkenna og líðan sjúklinga

Verkefnið Forprófun á íslenskri þýðingu á spurningabanka um aukaverkanir og einkenni hjá einstklingum með krabbamein (NCI PRO-CTCAE) hlaut 2.400.000 kr. styrk úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins árið 2023

Á myndinni eru: Nanna Friðriksdóttir, Kristín Skúladóttir, Sigurdís Haraldsdóttir og Hrefna Magnúsdóttir. Á myndina vantar Agnesi Smáradóttur, Örvar Gunnarsson, Sigríði Zoega, Sigríði Gunnarsdóttur og Söndru Mitchell.