Markmiðið að þróa sértækar lyfjaferjur

Gunnhildur Ásta Traustadóttir ætlar að rannsaka hversu vel sértæk sameind kemst inn í þrívítt frumumódel

Í þessari rannsókn ætlum við setja upp þrívíð frumumódel með brjóstakrabbameinsfrumum og besta aðferðir til myndgreiningar á frumumódelinu í lagsjá. Frumumódelið verður svo notað til að meta hversu vel sértæk flúorljómandi prótínsameind kemst inn í þrívíða frumumódelið með það að markmiði að þróa sértækar lyfjaferjur sem komast greiðlega inn í æxli.

Verkefnið Mat á áhrifum sértækrar peptíð-ferju á krabbameinsfrumur í þrívíðri rækt hlaut 2.000.000 kr. styrk úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins árið 2023