Sértæk meðferð gæti gagnast fleirum

Stefán Sigurðsson rannsakar þátt ættlægra DNA breytinga á sjúkdómsframvindu hjá konum með eggjastokkakrabbamein. 

Markmið verkefnisins er að rannsaka þátt ættlægra stökkbreytinga og sviperfðabreytinga í DNA viðgerðargenum á krabbameinsáhættu og sjúkdómsframvindu hjá konum sem greinst hafa með eggjastokkakrabbamein. Að sögn Stefáns Sigurðssonar dósents við læknadeild Háskóla Íslands er mikilvægt að bera kennsl á æxli sem hafa slíkar breytingar þar sem það stækkar þann hóp þar sem sértæk meðferð gæti hjálpað.

Verkefnið Stökkbreytingar og sviperfðabreytingar í eggjastokka-, eggjaleiðara- og lífhimnukrabbameini, á Íslandi 1989-2013  hlaut 6,8 milljóna króna styrk árið 2019.

Styrkurinn er mjög mikilvægur og gerir okkur kleift að rannsaka áhrif stökkbreytinga og sviperfðabreytinga í eggjastokkakrabbameinum með það að leiðarljósi að bæta meðferðarúrræði.“