22.02 2012 - Miðvikudagur

Úrslit í samkeppninni "Það er algjör vitleysa að reykja!"

Á safnanótt 10. febrúar sl. var tilkynnt um úrslit í samkeppninni „Það er algjör vitleysa að reykja!“. Samkeppnin var haldin í tilefni af sýningunni „Þetta er allt sama tóbakið!“ sem stendur í Þjóðminjasafni Íslands. Sigurtillögurnar ásamt úrvali plakata sem bárust í keppnina má nú sjá á sýningu á Torgi við Kaffitár í Þjóðminjasafni Íslands. 
21.02 2012 - Þriðjudagur

Eru lögbundin réttindi krabbameinssjúklinga virt?

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 kallar heilbrigðisyfirvöld til samfundar við einstaklinga sem hafa reynslu af heilbrigðiskerfinu. Reynslu- og fagþekking munu mætast og málin verða rædd.
Fimmtudaginn  23. febrúar  mun Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags Íslands halda örráðstefnuna: Eru lögbundin réttindi krabbameinssjúklinga virt? Ráðstefnan verður milli  klukkan 16:30-18:00  að Skógarhlíð 8








Skipta um leturstærð


Leit