Sérstök stærri úthlutun árið 2024

Styrkir til rannsókna á krabbameinum í börnum og unglingum og aðhlynningar krabbameinssjúkra barna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins

Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins er að efla rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. 47 rannsóknarverkefni af fjölbreyttum toga hafa fengið styrki úr sjóðnum frá árinu 2017. Styrkirnir eru 83 talsins alls að upphæð 455,5 milljónir króna.

Samkvæmt skipulagsskrá skal sjóðurinn m.a. styrkja verkefni sem eru í samræmi við vilja Kristínar Björnsdóttur, fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna en fjórðungur stofnframlags Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins var erfðagjöf hennar.

Hægt er að sækja um styrk til verkefna og rannsókna á krabbameinum í börnum og unglingum.

Frekari upplýsingar

Visindasjodur-staerri-auglysing