Vilt þú taka þátt í undirbúningi Styrkleikanna?
Styrkleikarnir verða haldnir í annað sinn á Selfossi laugardaginn 29. apríl til sunnudagsins 30. apríl. Styrkleikarnir snúast um að styðja við, heiðra eða minnast þeirra sem hafa fengið krabbamein.
Við leitum að einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn til þess að hjálpa okkur við skipulagningu og framkvæmd leikanna. Verkefnin eru fjölbreytt og allir geta fundið hlutverk við hæfi.
Kynningarfundur verður haldinn hjá Krabbameinsfélagi Árnessýslu, Eyrarvegi 31,
þriðjudaginn 31. janúar kl. 19:30.
Allar nánari upplýsingar um Styrkleikana má finna á styrkleikarnir.is.