Bláa Lónið styrkir Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins um 3 milljónir
„Það er okkur sönn ánægja að geta veitt fjárstuðning sem þennan, enda er, hér eftir sem hingað til, afar mikilvægt að efla og styrkja íslenskar rannsóknir á krabbameinum og er Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins vel til þess fallinn að halda utan um þær,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins.
Í fyrra studdi Bláa Lónið Krabbameinsfélagið bæði með þátttöku í átaksverkefnunum Mottumars og Bleikum október. Líkt og fyrri ár rann hluti af sölu sturtugels Bláa Lónsins í mars 2021 og varasalvans í október, til Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins.
Að þessu sinni söfnuðust 3.000.000 króna og hefur Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, afhent Krabbameinsfélaginu þá upphæð. Bláa Lónið hefur veitt stuðning við verkefni Krabbameinsfélagsins allt frá árinu 2015.
Átaksverkefni Krabbameinsfélagsins eru gríðarlega mikilvæg samfélagsverkefni.
„Það er okkur sönn ánægja að geta veitt fjárstuðning sem þennan, enda er, hér eftir sem hingað til, afar mikilvægt að efla og styrkja íslenskar rannsóknir á krabbameinum og er Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins vel til þess fallinn að halda utan um þær,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins.
„Stuðningur Bláa Lónsins hefur verið okkur mikilvægur í gegnum tíðina. Hann gerir okkur kleift að styðja við enn fleiri rannsóknir, en við höfum verið að sjá aukinn vöxt í fjölda umsókna um styrki úr sjóðnum síðustu ár. Sjóður sem þessi er drifkrafturinn í bættum árangri í rannsóknum og þannig í baráttunni við krabbamein á Íslandi“ segir Sigríður Gunnarsdóttir, formaður Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins.
Tilgangur Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins er að efla íslenskar rannsóknir á krabbameinum, meðal annars með því að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferðum og lífsgæðum sjúklinga.
Frá fyrstu úthlutun Vísindasjóðs hafa 37 rannsóknir hlotið styrki að upphæð 316 milljónir króna og hefur Bláa Lónið verið einn af helstu stuðningsaðilum sjóðsins allt frá stofnun hans árið 2015.
- Nánari upplýsingar um sjóðinn og rannsóknirnar sem styrktar hafa verið má nálgast hér.