Ása Sigríður Þórisdóttir 16. feb. 2024

Veruleg ánægja með námskeiðið og hefur fólk ekki látið misgott veður stöðva sig

Göngurnar eru leiddar af leiðsögumönnum frá Ferðafélaginu sem jafnframt fræða um ýmislegt áhugavert sem tengist þeim slóðum sem gengið er um. Rúmlega fjörutíu þátttakendur á námskeiðinu sem mun standa alveg fram í júní.

Þann 20. janúar sl. hófst göngu- og fróðleiksnámskeið í samstarfi Krabbameinsfélagsins og Ferðafélags Íslands. Námskeiðið er ætlað þeim sem fengið hafa krabbamein og aðstandendum þeirra.

Gengið er vikulega víða á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Göngurnar hafa mælst mjög vel fyrir og eru rúmlega fjörutíu þátttakendur á námskeiðinu. 

Búið er að fara í 4 af 21 göngu og hefur fólk ekki látið misgott veður stöðva sig. Göngurnar eru leiddar af leiðsögumönnum frá Ferðafélaginu sem jafnframt fræða um ýmislegt áhugavert sem tengist þeim slóðum sem gengið er um. Námskeiðið mun standa alveg fram í júní.

Gongumynd3

Meðal helstu markmiða Krabbameinsfélagsins er að bæta lífsgæði fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra. Heilnæm útivist getur stuðlað að betri andlegri og líkamlegri heilsu fólks sem tekst á við afleiðingar krabbameins og meðferða vegna þess. Einnig er félagsskapur við aðra sem eiga svipaða reynslu að baki mjög jákvæður.

Eftirtalin fyrirtæki hafa lagt verkefninu lið og erum við afar þakklát fyrir stuðning þeirra:


Sportvorur-Logo-svart-orangeCw_Myllan_logo_nybakad_1959_C_20200428


326989611_1105071036835270_5202549713601488766_n-facebookFjallakofinn-merki-nytt




Fleiri nýjar fréttir

8. maí 2024 : Málþing: Stöðluð greiningar- og meðferðarferli, allt frá því að grunur vaknar um krabbamein

Myndi innleiðing slíkra ferla hér á landi hjálpa til við að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinum í framtíðinni? 

Lesa meira

7. maí 2024 : „Kíkjugataaðgerð“ við lungnakrabbameini styttir legutíma um helming

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands styrkti rannsóknina. Árangur blaðnámsaðgerða með aðstoð brjóstholssjár við lungnakrabbameini. Niðurstöðurnar sýna að á ekki stærra sjúkrahúsi en Landspítala er hægt er að taka upp tæknilega flókna skurðaðgerð án þess að slegið sé af kröfum um öryggi. Þannig lifðu allir sjúklingarnir aðgerðina af en færri fylgikvillar og minni verkir styttu legutíma um helming. 

Lesa meira

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?