Sigurlaug Gissurardóttir 30. ágú. 2016

Haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins 31. ágúst-7. september

Árleg haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins 2016Árleg haustsala aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins stendur yfir 31. ágúst - 7. september 2016. Í ár selja aðildarfélögin penna, rúðusköfur og fjölnota innkaupapoka með merki félagsins.

Allur ágóði rennur til aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands en það eru svæðisbundin krabbameinsfélög og stuðningshópar sem stofnaðir hafa verið til að sinna fræðslu og þjónustu við þá sem hafa fengið krabbamein.

Félögin takast á við veigamikil verkefni í heimabyggð sinni, einkum á sviði fræðslu og stuðnings við sjúklinga og fjölskyldna þeirra. Stuðningshóparnir hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra og hefur það haft ómetanlega þýðingu. Sölunni er ætlað að styðja við þessa starfsþætti.

Takið vel á móti sölufólki okkar!


Fleiri nýjar fréttir

8. maí 2024 : Málþing: Stöðluð greiningar- og meðferðarferli, allt frá því að grunur vaknar um krabbamein

Myndi innleiðing slíkra ferla hér á landi hjálpa til við að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinum í framtíðinni? 

Lesa meira

7. maí 2024 : „Kíkjugataaðgerð“ við lungnakrabbameini styttir legutíma um helming

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands styrkti rannsóknina. Árangur blaðnámsaðgerða með aðstoð brjóstholssjár við lungnakrabbameini. Niðurstöðurnar sýna að á ekki stærra sjúkrahúsi en Landspítala er hægt er að taka upp tæknilega flókna skurðaðgerð án þess að slegið sé af kröfum um öryggi. Þannig lifðu allir sjúklingarnir aðgerðina af en færri fylgikvillar og minni verkir styttu legutíma um helming. 

Lesa meira

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?