Forsetinn tók við fyrsta parinu á Bessastöðum í dag
Allt frá því að Mottumarssokkarnir voru fyrst kynntir til leiks, árið 2018, hefur forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson verið sá fyrsti til að klæðast þeim. Stuðningur forsetans í Mottumars er Krabbameinsfélaginu afar dýrmætur.
Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum í körlum, hefst 1. mars. Í Mottumars tökum við höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum fjár fyrir mikilvægri starfsemi. Minnum karlmenn sérstaklega á að kynna sér og þekkja hvaða einkenni geta bent til krabbameins og hvetjum þá til að leita fljótt til læknis verði þeir varir við einkenni.
Á myndinni eru: Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og hönnuðir sokkana Bergþóra Guðnadóttir hönnuður og Jóel Pálsson tónlistarmaður frá Farmers Market.