Áfram Ísland og upp með sokkana!
Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands ætlar að hvetja íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu til dáða með vinum og vandamönnum og því verður lokað í Skógarhlíð 8 frá kl. 14:30 í dag.
Starfsfólkið hefur þegar tryggt sér sokkana góðu og mun skarta þeim í leiknum gegn Nígeríu. Ef þú hefur ekki þegar tryggt þér par er óþarfi að örvænta - kíktu inn á netverslunina og nældu þér í eintök eða renndu við í völdum verslunum Bónus og vertu klár fyrir næsta leik!