70 andlit fyrir 70 ár: Heildarverkið lítur dagsins ljós!
Krabbameinsfélagið fagnaði 70 ára afmæli sínu með ýmsum hætti á afmælisárinu sem lauk formlega í gær, mánudaginn 27. júní.
Meðal þess sem bryddað var upp á í tilefni tímamótanna var verkefnið „70 andlit fyrir 70 ár” þar sem birtar voru myndir eða myndskeið af fólki sem hefur komið við sögu í baráttunni gegn krabbameinum í 70 ára sögu félagsins.
Þessar „smásögur” varpa fjölbreyttu ljósi á starfsemi félagsins og það margþætta hlutverk sem það hefur gegnt, og mun gegna, í íslensku samfélagi.
Um leið og við þökkum þeim sem tóku þátt skal tekið fram að þessi myndarlegi hópur er aðeins brot af þeim stóra hópi fólks sem sett hefur mark sitt á sögu félagsins í gegnum tíðina.
Efnið er aðgengilegt á samfélagsmiðlum félagsins: