Anna Margrét Björnsdóttir 3. mar. 2023

Pistill um ristil

Grein birtist á visir.is 3. mars 2023.

Í dag, 3. mars, er alþjóðlegur dagur krabbameina í ristli og endaþarmi og er dagurinn tileinkaður vitundarvakningu um þessi mein. 

Krabbamein í ristli og endaþarmi eru önnur algengasta tegund krabbameina á Íslandi og þriðja algengasta tegundin á heimsvísu. Síðustu fimm ár hefur að meðaltali greinst 191 einstaklingur með þessi mein á Íslandi og að meðaltali 65 einstaklingar hafa látist ár hvert. Það jafngildir því að fleiri en einn látist af völdum þessara meina í hverri viku. Meinin eru algengari hjá körlum, en 1 af hverjum 18 körlum greinist með mein á móti 1 af hverjum 23 konum. Það er því við hæfi að vekja athygli á þessum meinum í upphafi Mottumars sem er tileinkaður baráttu karla við krabbamein.

Mikið í húfi

Þrátt fyrir að framfarir í greiningu og meðferð hafi skilað bættum lífshorfum hefur einnig fjölgað jafnt og þétt í sjúklingahópnum undanfarna áratugi. Vísbendingar eru uppi um að nýgengi fari vaxandi, en mannfjöldaþróun hefur þar einnig áhrif. Búast má við enn meiri fjölgun í þessum hópi í takt við breytta aldurssamsetningu íslensku þjóðarinnar og fólksfjölgun, en heilt yfir er spáð 52% fjölgun krabbameinstilvika jafnt og þétt til ársins 2040.

Því fyrr, því betra

Því fyrr sem krabbamein greinast, því betri eru batahorfur. Almennt eru horfur sjúklinga með krabbamein í ristli og endaþarmi á lægri stigum góðar, en þessar tegundir krabbameina valda oft litlum einkennum og einkennin koma seint fram. Af því leiðir að krabbameinin geta verið langt gengin þegar þau greinast, en þá er meðferð gjarnan umfangsmeiri og lífshorfur lakari.

Með skimunum má hins vegar koma í veg fyrir krabbamein með því að greina þau á forstigum, eða með því að finna einkennalaus krabbamein á lægri og læknanlegri stigum. Skimun gegn krabbameinum í ristli og endaþarmi er ein af þremur lýðgrunduðum skimunum sem alþjóðastofnanir mæla með, en sú eina sem Ísland hefur ekki tekið upp. Ísland er þar eftirbátur hinna Norðurlandanna sem öll hafa innleitt skimun alveg eða að hluta.

Langur aðdragandi

Í síðustu viku bárust þær fréttir frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að stefnt sé að því að hefja skimun fyrir krabbameinum í ristli og endaþarmi á Íslandi á þessu ári. Krabbameinsfélagið fagnar þessu, því það er löngu tímabært og aðdragandinn hefur sannarlega verið langur. Landlæknir hefur frá aldamótum mælt með skimunum fyrir krabbameinum í ristli og endaþarmi og Krabbameinsfélagið kom að undirbúningsverkefni fyrir skimanir árið 2016 og veitti 20 milljónum til verkefnisins, en þá var markmið velferðarráðuneytisins að hefja skimanir haustið 2017.

Af því varð hins vegar ekki og síðan þá hefur Krabbameinsfélagið fylgst náið með þróun mála og ítrekað kallað eftir því að verkefnið hefjist. Að skipulögð skimun standi öllum á skimunaraldri til boða er mikið réttlætismál og stuðlar að auknum jöfnuði. Að skimun sé í boði er síðan eitt, en til að árangur verði er nauðsynlegt að almenningur svari kallinu þegar þar að kemur og taki þátt í skimuninni.

Betur má ef duga skal

Þegar skimanir hafa verið teknar upp er hálfur sigurinn unninn. Forvarnir gegna einnig mikilvægu hlutverki. Vaxandi nýgengi er uggvænleg þróun, en krabbamein í ristli og endaþarmi eru meðal þeirra krabbameina sem hafa sterk tengsl við lífsstíl. Með heilsusamlegum lífsstíl er því hægt að draga úr áhættu.

Fræðsla um áhættuþætti og leiðir til að draga úr áhættu er mjög mikilvæg og rík ástæða til að hvetja fólk til að kynna sér þær leiðir. Áherslur stjórnvalda sem miða að því að skapa samfélag sem setur heilsusamlegan lífsstíl í öndvegi skipta líka verulegu máli. Við þekkjum hvaða leiðir eru færar til að fækka þessum tilvikum. Nýtum þær, okkur öllum til góðs.

  • Grein birtist á visir.is 3. mars 2023.

Fleiri nýjar fréttir

Sol-og-solarvarnir-frettabref-1-

17. maí 2024 : Fréttabréf maí mánaðar

Sólin er umræðuefni fréttabréfs maí mánaðar. Við tökum fyrir sólarvarnir og hve miklu máli þær skipta fyrir alla, þó sérstaklega börnin. Þá ræðum við húðkrabbamein sem og ráð fyrir þau sem eru með krabbamein í sumarfríinu.

Lesa meira

16. maí 2024 : Styrkir til gæða­verkefna og vísinda­rannsókna í heil­brigðis­þjónustu

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Minningarsjóð um hjónin Bergþóru Magnúsdóttur og Jakob Júlíus Bjarnason.

Lesa meira

8. maí 2024 : Málþing: Stöðluð greiningar- og meðferðarferli, allt frá því að grunur vaknar um krabbamein

Myndi innleiðing slíkra ferla hér á landi hjálpa til við að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinum í framtíðinni? 

Lesa meira

7. maí 2024 : „Kíkjugataaðgerð“ við lungnakrabbameini styttir legutíma um helming

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands styrkti rannsóknina. Árangur blaðnámsaðgerða með aðstoð brjóstholssjár við lungnakrabbameini. Niðurstöðurnar sýna að á ekki stærra sjúkrahúsi en Landspítala er hægt er að taka upp tæknilega flókna skurðaðgerð án þess að slegið sé af kröfum um öryggi. Þannig lifðu allir sjúklingarnir aðgerðina af en færri fylgikvillar og minni verkir styttu legutíma um helming. 

Lesa meira

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?