Guðmundur Pálsson 4. jún. 2021

„Hleyp til heiðurs pabba”

Marinó hleypur til styrktar Krabbameinsfélaginu og heiðrar um leið minningu föður síns.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2021 verður haldið í 37. sinn þann 21. ágúst. Hlaupurum gefst kostur á að hlaupa til styrktar góðs málefnis og fer áheitasöfnunin fram á hlaupastyrkur.is.

Meðal þátttakenda verður Marinó Eggertsson en hann hleypur til styrktar Krabbameinsfélaginu og heiðrar um leið minningu föður síns.

„Ég veit fyrir víst að pabbi væri fyrstur að mæta til þess að hvetja mig til dáða og er leitt að geta ekki haft hann hjá mér í þetta sinn. Ég hleyp því fyrir hann og safna áheitum fyrir Krabbameinsfélag Íslands sem vinnur gríðarlega mikilvægt starf í baráttunni við krabbamein", segir Marinó sem hefur þegar safnað 100.000 kr.

Marino

Marinó ásamt föður sínum.


Fleiri nýjar fréttir

Sol-og-solarvarnir-frettabref-1-

17. maí 2024 : Fréttabréf maí mánaðar

Sólin er umræðuefni fréttabréfs maí mánaðar. Við tökum fyrir sólarvarnir og hve miklu máli þær skipta fyrir alla, þó sérstaklega börnin. Þá ræðum við húðkrabbamein sem og ráð fyrir þau sem eru með krabbamein í sumarfríinu.

Lesa meira

16. maí 2024 : Styrkir til gæða­verkefna og vísinda­rannsókna í heil­brigðis­þjónustu

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Minningarsjóð um hjónin Bergþóru Magnúsdóttur og Jakob Júlíus Bjarnason.

Lesa meira

8. maí 2024 : Málþing: Stöðluð greiningar- og meðferðarferli, allt frá því að grunur vaknar um krabbamein

Myndi innleiðing slíkra ferla hér á landi hjálpa til við að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinum í framtíðinni? 

Lesa meira

7. maí 2024 : „Kíkjugataaðgerð“ við lungnakrabbameini styttir legutíma um helming

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands styrkti rannsóknina. Árangur blaðnámsaðgerða með aðstoð brjóstholssjár við lungnakrabbameini. Niðurstöðurnar sýna að á ekki stærra sjúkrahúsi en Landspítala er hægt er að taka upp tæknilega flókna skurðaðgerð án þess að slegið sé af kröfum um öryggi. Þannig lifðu allir sjúklingarnir aðgerðina af en færri fylgikvillar og minni verkir styttu legutíma um helming. 

Lesa meira

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?