Ása Sigríður Þórisdóttir 7. jún. 2022

Bjóðum Árna velkominn

Árni Reynir Alfredsson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála og fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu, frá 1. júní.

Árni hefur lokið BA prófi í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og MBA-námi frá Háskóla Íslands árið 2009. Hann hefur í gegnum störf sín öðlast mikla þekkingu og reynslu á sviði markaðsmála og stafrænnar þróunar. Árni kemur til Krabbameinsfélagsins frá ÍMARK en þar starfaði hann sem framkvæmdastjóri félagsins. Þar áður var Árni markaðsstjóri BYKO í rúm 7 ár, frá 2014 til 2021. Árni kemur til með að leiða öflugt teymi félagsins í markaðs,- kynningar- og fjáröflunarmálum.

„Við erum afar glöð að vera búin að fá Árna í hópinn. Hann er metnaðarfullur, jákvæður og með hjartað á réttum stað. Öflug fjáröflun er nauðsynleg til að félagið geti unnið að krafti að markmiðum sínum, að fækka þeim sem fá krabbamein, að fjölga þeim sem lifa og að bæta líf þeirra og aðstandenda. Allt starf félagsins byggir á stuðningi almennings og fyrirtækja í landinu sem frá upphafi hafa staðið þétt við bakið á félaginu. Krabbamein snerta okkur öll og með því að leggja saman krafta okkar náum við meiri árangri. Við erum sannfærð um að Árni verður góður liðsauki og hlökkum mjög til samstarfsins“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

„Ég er virkilega spenntur fyrir þeim áhugaverðu og mikilvægu verkefnum sem bíða mín hjá Krabbameinsfélaginu. Félagið hefur unnið faglegt og metnaðarfullt starf í markaðs- og fjáröflunarmálum, þar starfar afar reynt starfsfólk sem hefur staðið sig með prýði í sínum störfum og það verður spennandi og krefjandi að halda þeirri vegferð áfram“ segir Árni Reynir.


Fleiri nýjar fréttir

Sol-og-solarvarnir-frettabref-1-

17. maí 2024 : Fréttabréf maí mánaðar

Sólin er umræðuefni fréttabréfs maí mánaðar. Við tökum fyrir sólarvarnir og hve miklu máli þær skipta fyrir alla, þó sérstaklega börnin. Þá ræðum við húðkrabbamein sem og ráð fyrir þau sem eru með krabbamein í sumarfríinu.

Lesa meira

16. maí 2024 : Styrkir til gæða­verkefna og vísinda­rannsókna í heil­brigðis­þjónustu

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Minningarsjóð um hjónin Bergþóru Magnúsdóttur og Jakob Júlíus Bjarnason.

Lesa meira

8. maí 2024 : Málþing: Stöðluð greiningar- og meðferðarferli, allt frá því að grunur vaknar um krabbamein

Myndi innleiðing slíkra ferla hér á landi hjálpa til við að takast á við þær áskoranir sem fylgja krabbameinum í framtíðinni? 

Lesa meira

7. maí 2024 : „Kíkjugataaðgerð“ við lungnakrabbameini styttir legutíma um helming

Vísindasjóður Krabbameinsfélags Íslands styrkti rannsóknina. Árangur blaðnámsaðgerða með aðstoð brjóstholssjár við lungnakrabbameini. Niðurstöðurnar sýna að á ekki stærra sjúkrahúsi en Landspítala er hægt er að taka upp tæknilega flókna skurðaðgerð án þess að slegið sé af kröfum um öryggi. Þannig lifðu allir sjúklingarnir aðgerðina af en færri fylgikvillar og minni verkir styttu legutíma um helming. 

Lesa meira

24. apr. 2024 : Fundarboð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?