Nílsína: Stuðningsfulltrúinn gaf von og létti þungu fargi

  • Nílsína Larsen Einarsdóttir

Nílsína Larsen Einarsdóttir greindist með eitlakrabbamein fyrir níu árum, þá 32 ára. Hún hafði reynslu af því að vera aðstandandi, en pabbi hennar greindist með krabbamein í hálsi þegar hún var tvítug.

„Það er enginn sem skilur þessa upplifun nema sá sem hefur farið í gegnum hana.”

„Ég hef verið aðstandandi þar sem pabbi minn greindist með krabbamein í hálsi þegar ég var tvítug og svo hef ég sjálf líka fengið krabbamein. Ég var 32 ára þegar ég greindist með eitlakrabbamein á þriðja stigi og þurfti að fara í gegnum miklar lyfjameðferðir og endaði á að þurfa fara í stofnfrumumeðferð. Mér var haldið sofandi eftir eitrunaráhrif meðferðar og var tvísýnt hvort ég myndi vakna aftur. En hér er ég í dag.“

https://youtu.be/5456mm1nxZ8

„Það gerði mér mjög mikið að fá jafningjastuðning á sínum tíma og því er ég sjálf núna stuðningsfulltrúi. Það að hitta einhvern sem hafði farið í gegnum það sama og ég var að fara í gegnum gaf mér svo mikla von. Að hitta manneskju sem leit bara þokkalega vel út eftir þetta allt saman, með hár, augabrúnir, augnhár, sömu örin og ég, og geislandi líf í augunum – ef að hún gat þetta þá mundi ég kannski bara mögulega geta þetta líka.

Þegar maður greinist með lífsógnandi sjúkdóm þá er ákaflega mikilvægt að maður fái tækifæri til að ræða málin við fagaðila svo sem lækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga. En jafningjastuðningur er ótrúlega mikilvæg viðbót. Að tala við einhvern sem hefur verið í þínum sporum og skilur þitt landslag og þinn heim akkúrat þar sem þú ert núna.

Krabbamein hefur líka gífurlega mikil áhrif á alla í kringum þann greinda. Ert þú vinur, maki, frændi eða vinkona og það er einhver nákominn þér sem er að ganga í gegnum krabbamein og þig langar til að vera til staðar? Þá er um að gera að taka bara upp símann og hringja í Stuðningsnetið og fá aðstoð.”

Nílsína er stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu



Fleiri sögur

Kristín Þórsdóttir

4. feb. 2020 : Kristín: Það krefst mikils styrks að leita sér stuðnings

Kristín Þórsdóttir var 33ja ára þegar hún missti manninn sinn úr krabbameini en þau eiga þrjú börn saman. Veikindin tóku 11 ár og tóku mikið á. Nú, tveimur árum seinna, þykir Kristínu dýrmætt að hægt sé að leita stuðnings hjá einhverjum sem skilur út frá eigin reynslu.

Lesa meira
Anna Lára Magnúsdóttir

4. feb. 2020 : Anna Lára: Maður er ekki einn í heiminum

Anna Lára Magnúsdóttir er 47 ára og greindist fyrir sjö árum með brjóstakrabbamein. Henni fannst jafningjastuðningurinn veita sér von um að hún fengi gamla lífið sitt til baka. 

Lesa meira
Anna Maria Milosz

4. feb. 2020 : Anna María: Svo gott að pústa við einhvern sem skilur

Anna María greindist 34. ára með Non-Hodgkins eitilfrumukrabbamein en gaf sér ekki tíma til að hitta stuðningsfulltrúa. Hún sér eftir því í dag og telur mikilvægt að þiggja jafningjastuðning.

Lesa meira
Haukur Gunnarsson

4. feb. 2020 : Haukur: Samtalið er magnað fyrirbæri

Haukur Gunnarsson er sjötugur og greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir þremur árum. Hann og kona hans hafa sótt stuðning í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem hefur auðveldað þeim að tala saman um veikindin og áskoranirnar sem þeim fylgja. 

Lesa meira
Ragnheiður Guðmundsdóttir

4. feb. 2020 : Ragnheiður: Greiningin breytti lífi mínu

Ragnheiður Guðmundsdóttir er 37 ára og greindist með krabbamein í lífhimnu og lifur fyrir ári síðan. Kvíði, áfallastreita og þunglyndi fylgdu veikindunum og hún vill hjálpa öðrum með stuðningi í Stuðningsnetinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?