Anna María: Svo gott að pústa við einhvern sem skilur

  • Anna Maria Milosz

Anna María greindist 34. ára með Non-Hodgkins eitilfrumukrabbamein en gaf sér ekki tíma til að hitta stuðningsfulltrúa. Hún sér eftir því í dag og telur mikilvægt að þiggja jafningjastuðning.

Anna Maria er frá Póllandi og er bæði stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu og leiðir stuðningshóp hjá Krabbameinsfélaginu fyrir fólk af erlendu bergi brotnu sem greinist með krabbamein eða aðstandendur þeirra. 

„Ég tel það mjög mikilvægt að tala um hlutina og hlusta á aðra og þess vegna er ég í Stuðningsnetinu. - Það er svo gott að pústa við einhvern sem skilur þig”

„Ég er stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu því það er svo gott að tala um hlutina og ég tel mig geta hjálpað öðrum þar sem ég er mjög góð í að hlusta. Það er svo gott að tala um hluti og pústa við einhvern sem hefur svipaða reynslu. Stundum er maður bara ekki í stuði til að tala og þá getur verið gott að hlusta á reynslu annarra og finna að maður er ekki einn. Reynslan mín varðandi krabbamein er jákvæð miðað við allt. Ég lærði mikið um sjálfa mig, mína styrkleika og að hugsa vel um sjálfa mig. Þegar ég var veik var ég með stuðningsfulltrúa en ég gaf mér aldrei tíma til að hitta hana. Ég sé alveg eftir því. Í dag segi ég við alla að það skiptir máli að þiggja stuðninginn því jafningjastuðningur getur hjálpað.”

Anna María er stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu 



Fleiri sögur

Kristín Þórsdóttir

4. feb. 2020 : Kristín: Það krefst mikils styrks að leita sér stuðnings

Kristín Þórsdóttir var 33ja ára þegar hún missti manninn sinn úr krabbameini en þau eiga þrjú börn saman. Veikindin tóku 11 ár og tóku mikið á. Nú, tveimur árum seinna, þykir Kristínu dýrmætt að hægt sé að leita stuðnings hjá einhverjum sem skilur út frá eigin reynslu.

Lesa meira
Anna Lára Magnúsdóttir

4. feb. 2020 : Anna Lára: Maður er ekki einn í heiminum

Anna Lára Magnúsdóttir er 47 ára og greindist fyrir sjö árum með brjóstakrabbamein. Henni fannst jafningjastuðningurinn veita sér von um að hún fengi gamla lífið sitt til baka. 

Lesa meira
Haukur Gunnarsson

4. feb. 2020 : Haukur: Samtalið er magnað fyrirbæri

Haukur Gunnarsson er sjötugur og greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir þremur árum. Hann og kona hans hafa sótt stuðning í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem hefur auðveldað þeim að tala saman um veikindin og áskoranirnar sem þeim fylgja. 

Lesa meira
Ragnheiður Guðmundsdóttir

4. feb. 2020 : Ragnheiður: Greiningin breytti lífi mínu

Ragnheiður Guðmundsdóttir er 37 ára og greindist með krabbamein í lífhimnu og lifur fyrir ári síðan. Kvíði, áfallastreita og þunglyndi fylgdu veikindunum og hún vill hjálpa öðrum með stuðningi í Stuðningsnetinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?