Ráðgjöf og stuðningur

Krabbameinsfélag Íslands veitir þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra margháttaða þjónustu.

Í Ráðgjafaþjónustu félagsins er boðið upp á fræðslu, upplýsingar, ráðgjöf og stuðning við fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Þar hafa fulltrúar stuðningshópa Krabbameinsfélagsins aðstöðu til að hittast og veita krabbameinssjúklingum og aðstandendum þeirra stuðning og jafningjafræðslu. 

Í Krabbameinsskrá eru tiltækar upplýsingar um öll krabbamein og eftir atvikum skylda sjúkdóma eða viðurkenndar forstigsbreytingar æxlisvaxtar sem greinst hafa á Íslandi frá árinu 1955. Skráin veitir einstakar og verðmætar upplýsingar um þróun og tíðni krabbameinssjúkdóma hér á landi og er mikilvægur grundvöllur krabbameinsrannsókna.

Skipulögð legháls- og brjóstakrabbameinsleit fer fram í Leitarstöðinni í Reykjavík, á heilsugæslustöðvum og sjúkrastofnunum landsins.  Þáttaskil urðu í leit að brjóstakrabbameini með tilkomu nýrrar stafrænnar tækni sem tekin var í notkun 2008.

Svæðafélög sem starfa innan Krabbameinsfélags Íslands er alls 23 með um 7400 félaga.  Á vegum Krabbameinsfélagsins starfa auk þess sjö stuðningshópar sjúklinga á landsvísu sem njóta margvíslegrar þjónustu hjá félaginu og hafa aðstöðu í húsi þess að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. 

Í stuðningshópum Krabbameinsfélagsins er fólk sem vinnur að sameiginlegu viðfangsefni í þeim tilgangi að efla eigin bjargráð og annarra. Félagar stuðningshópanna halda úti öflugri jafningjafræðslu.

Íbúðir fyrir fólk í krabbameinsmeðferð. Krabbameinsfélag Íslands býður krabbameinssjúkum og aðstandendum þeirra af landsbyggðinni afnot af 8 íbúðum í Reykjavík á meðan á meðferð þeirra stendur gegn vægu gjaldi.  Hægt er að leigja hverja íbúð í allt að sjö vikur.

30.04 2012 - Mánudagur

Á móti hækkandi sól

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags Íslands stendur fyrir örráðstefnu um streitu og áfallið að greinast með krabbamein 10. maí kl. 16.30 - 18:00. Unnur Anna Valdimarsdóttir mun fjalla um sjálfsvíg og hjartaáföll í kjölfar krabbameinsgreiningar, Dr. Snorri Ingimarsson, krabbameins- og geðlæknir fjallar um fyrstu skrefin þegar greining hefur átt sér stað. Séra Sigurður Arnarson mun tala um stuðninginn við fjölskyldur og dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir mun halda erindið: „Berskjaldaður - að brotna til að opna“. 
30.04 2012 - Mánudagur

Umsóknum í Kastað til bata skal skila fyrir 21. maí

Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands, Samhjálp kvenna og styrktaraðilar  bjóða konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í tveggja daga ferð í  miðjum júní í Sogið  og  Úlfljótsvatn.  Markmið þessa boðs er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu - og veiða ef heppnin er með. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit