Leggðu okkur lið

Krabbameinsfélagið byggir starf sitt að miklu leyti á stuðningi almennings og fyrirtækja. Hægt er að leggja félaginu lið með ýmsu móti, m.a. með:

  • fjárgjöfum
  • gerast Velunnari
  • gerast Samstarfsaðili
  • gerast félagi í svæðafélagi
  • kaupa happdrættismiða 
  • kaupa minningarkort.

Nánari upplýsingar má einnig fá í síma 540 1900.

Markaðssvið Krabbameinsfélag Íslands er ábyrgt fyrir fjáröflun félagsins, byggja upp vörumerkið Krabbameinsfélagið og styrkja ímynd þess.

Hlutverk sviðsins er enn fremur að vinna að hugmyndum um nýjar fjáröflunarleiðir og sinna markaðssetningu á þeim fjáröflunum sem Krabbameinsfélag Íslands og aðildarfélög vinna að.

Undir markaðssviðið heyrir öll fjáröflun og markaðssetning sem stunduð er undir vörumerki félagsins.

Markaðsáreiti Krabbameinsfélagsins er skipt í tvö megin áreiti á árinu, annars vegar Karlmenn og krabbamein (Mottumars) í marsmánuði og Bleika slaufan í októbermánuði. Að auki er happdrætti Krabbameinsfélagins í júní og desember.

Fjöldi annara verkefna er á sviði markaðsdeildar og eru þau mjög fjölbreytileg. Krabbameinsfélag vinnur einnig í samstarfi við önnur félög þar sem markmiðin fara saman.

Hægt er að leggja inn á bankareikning 0301-26-000706, kt. 7001692789, til að styrkja Krabbameinsfélagið með fjárframlagi án þess að gerast velunnari.

 

08.03 2013 - Föstudagur

Frískur til styrktar Krabbameinsfélaginu

Nemendur í Borgarholtsskóla taka þátt í vörumessu sem er í Smáralind dagana 8. og 9. mars. Einn hópurinn hefur framleitt heilsusafann Frískur og rennur hluti ágóðans af hverri seldri flösku til Krabbameinsfélagsins. 


Leggðu okkur lið

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

 

kt. 700169-2789
bankareikningur: 0301-26-000706

Markaðsstjóri
Sandra Sif Morthens
sandra@krabb.is







Skipta um leturstærð


Leit