Beint í efni
Framfarasjóður

Fram­fara­sjóð­ur

Framfarasjóður Krabbameinsfélags Íslands tók formlega til starfa í ágúst 2026. Tilgangur sjóðsins er að bæta þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess, með og eftir krabbamein og efla forvarnir gegn krabbameinum. Sjóðurinn mun styrkja med fjárframlögum ný verkefni sem ætlað er að bæta þjónustu við fólk við greiningu og meðferð krabbameina og að lokinni krabbameinsmeðferð auk nýrra verkefna til forvarna gegn krabbameinum.

Stjórn Framfarasjóðs

Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skulu þrír einstaklingar tilnefndir í stjórn til þriggja ára í senn af stjórn Krabbameinsfélags Íslands og tveir til vara. Formaður skal skipadur sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum. Enginn getur setið í stjórn Framfarasjóðs lengur en sex ár í senn.

Núverandi stjórn er þannig skipuð:

  • Sigríður Mogensen, formaður
  • Runólfur Sæmundsson
  • Vala Smáradóttir

Varamenn:

  • Arnar Árnason
  • Hrefna Eyþórsdóttir

Skipulagsskrá

Skipulagsskrá sjóðsins tók gildi 10. ágúst 2026.

Fagráð Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins

Eftirtaldir aðilar skipa Fagráð Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins:

  • Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
  • Guðmundur Oddgeirsson
  • Hanna Kristín Guðjónsdóttir
  • Jakob Jóhannsson
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir