Bleika slaufan - herferð
Bleika slaufan 2025
Reynslusögur

Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona
Auður Helgadóttir Möller greindist með ristilkrabbamein í mars 2025 og aftur ári síðar. Hún er að aðlagast breyttum aðstæðum og segir hvorki krabbameinið né stómað stjórna lífi sínu.

Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót

Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi

Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal

Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast
Sjáðu auglýsingu Bleiku slaufunnar 2025
Í Bleiku slaufunni í ár gefur við þeim orðið sem reynsluna hafa. Hlustum á þær sem þekkja best þá list að lifa með ólæknandi krabbameini.
Saga Thelmu Bjarkar, hönnuðar slaufunnar í ár er ein saga af fjölmörgum, holl áminning um að lífið er alls konar og við veljum hvernig við tökumst á við það.
Allt starf okkar hjá Krabbameinsfélaginu miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins með sínu fólki, með og eftir krabbamein.

Bleikar fréttir

Þegar tíminn skiptir öllu
Í návígi við krabbamein fær tíminn gjarnan aðra og dýpri merkingu.
Það á við hvort sem um er að ræða greiningu eða meðferð og eftir að meðferð lýkur.

Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona

Hannar þú Bleiku slaufuna 2027?

Bleikir Styrkleikar við rætur Úlfarsfells

Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót
Hönnuður Bleiku slaufunnar í ár er Thelma Björk Jónsdóttir
Thelma Björk er menntaður fatahönnuður og listakona og vinnur mikið með rósettur í sinni hönnun. Hún greindist með brjóstkrabbamein með meinvörpum árið 2024 og lifir því með ólæknandi krabbameini.

Bleiki dagurinn var miðvikudaginn 22. október
Fjölmargir tóku þátt í Bleika deginum í ár og lýstu skammdegið upp í bleikum ljóma til að minna á að það er list að lifa með krabbameini.
Við hvetjum fólk til að senda okkur myndir á netfangið bleikaslaufan@krabb.is og við komum þeim fyrir á myndasíðu Bleika dagsins á Facebook.

Vinir Bleiku slaufunnar
Fræðsluefni: Ólæknandi krabbamein
Að lifa með ólæknandi krabbameini er krefjandi áskorun og það er flestum þungbært að fá þær fréttir að sjúkdómurinn sé ekki á læknanlegum vegi. Í sumum tilvikum þróast sjúkdómurinn hratt, en sífellt fleiri lifa lengi með langvinnt ólæknandi krabbamein, þökk sé framþróun í greiningu og meðferðum.


Vissir þú að ...
- 0123456789012345678901234567890123456789
ókeypis viðtöl veittu ráðgjafar Krabbameinsfélagsins fólki með krabbamein og aðstandendum þeirra.
- 012345678901234567890123456789
er árlegur meðalfjöldi þeirra kvenna sem greindust með krabbamein hérlendis árin 2020-2024?
- 012345678901234567890123456789
milljónir voru veittar úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins til 58 íslenskra krabbameinsrannsókna 2017-2025.
Skráðu þig í Vinkonuklúbb Bleiku slaufunnar
Vinkonuklúbb Bleiku slaufunnar var ýtt úr vör í október 2018 og eru vinkonurnar nú yfir 10.000 talsins. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að hvetja konur til að mæta í skimanir fyrir krabbameinum og að minna líka vinkonur sínar á. Ýmsum öðrum upplýsingum er miðlað, m.a. um það hvernig draga megi úr líkum á krabbameinum, hvaða einkennum ætti að bregðast við og fleiri upplýsingar sem miða að því að efla heilsu kvenna.
Sem vinkona þiggur þú tölvupósta nokkrum sinnum á ári með fróðleik og hvatningu.
Við bjóðum allar nýjar vinkonur velkomnar!

Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.


