Beint í efni
  1. Heim
  2. Starfið
  3. Fréttir og miðlun
  4. Hjartans þakkir fyrir stuðninginn - Sjáðu þig áfram
Takk fyrir stuðninginn - sjáðu þig.

Hjart­ans þakk­ir fyr­ir stuðn­ing­inn - Sjáðu þig áfram

Markmið Bleiku slaufunnar í ár var að hvetja konur til að sjá sig og vera vakandi fyrir einkennum sem bent geta til krabbameins. Árvekni skipti einmitt sköpum fyrir Tönju og Jökul, hönnuði slaufunnar. 

Undirtektirnar, stuðningurinn og samkenndin í Bleiku slaufunni voru ótrúlega góðar. Fyrir það erum við hjá Krabbameinsfélaginu óendanlega þakklát öllum þeim sem tóku þátt. Stuðningurinn skiptir gríðarlegu máli fyrir starf Krabbameinsfélagsins en við vitum líka hve mikils virði þessi stuðningur er konum með krabbamein og aðstandendum þeirra. 

Takk fyrir stuðninginn í Bleiku slaufunni

Hönnuðir Bleiku slaufunnar í ár, þau Tanja Levý og Jökull Jónsson, þekkja það af eigin raun hvað vitundarvakning Bleiku slaufunnar skiptir miklu máli. Tanja greindist með brjóstakrabbamein í október 2025 og lýsir því að vegna Bleiku slaufunnar, sem var þá nýfarin af stað, hafi hún verið sérstaklega vakandi fyrir einkennum og sjálf fundið hnútinn í brjóstinu. 

Þau Tanja og Jökull fléttuðu reynslu sína, sem þau kalla bleika árið sitt, með einstökum hætti inn í hönnun slaufunnar samhliða krabbameinsmeðferðinni. Þau sögðu sjálf að ferlið hefði verið úrvinnsla úr tilfinningum þeirra og úr varð einstakur gripur með djúpa og merkingarþrungna sögu sem margir tengdu við. Það voru sannkölluð forréttindi fyrir okkur hjá Krabbameinsfélaginu að hafa þessa sterku sögu í forgrunni átaksins og við þökkum þeim innilega fyrir traustið. 

Tanja Levý og Jökull Jónsson eru hönnuðir Bleiku slaufunnar 2026.

Síðar í mánuðinum sögðu sex konur sögur sínar, en allar áttu þær sameiginlegt að hafa fundið fyrir einkennum sem reyndust vera af völdum krabbameins. Sögur þeirra kölluðust á við inntak átaksins og minntu okkur á mikilvægi þess að hlusta á líkamann og hika ekki við að leita til læknis ef breytinga verður vart. Við þökkum þeim sömuleiðis kærlega fyrir að treysta okkur fyrir reynslu sinni og fyrir að ljá átakinu rödd sína.  

Á Bleiku málþingi sem Krabbameinsfélagið stóð fyrir í samstarfi við Brjóstaheill - Samhjálp kvenna og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins var að þessu sinni sérstaklega fjallað um óttann við að endurgreinast, sem margir upplifa eftir að meðferð lýkur. Fjallað var um viðfangsefnið frá ólíkum hliðum og voru fyrirlesarar frá Krabbameinsfélaginu, Brjóstaheillum og frá Brjóstamiðstöð Landspítala, auk þess sem tvær konur deildu reynslu sinni.  Þeim viljum við sömuleiðis þakka kærlega fyrir sitt framtak. 

Mynd frá málþingi um óttann við að endurgreinast.

Til þess að tryggja að boðskapur átaksins fari sem víðast þarf mörg handtök. Starfsfólk Krabbameinsfélagsins hefur heimsótt á annan tug fyrirtækja og frætt starfsfólk um einkenni krabbameina. Fulltrúar félagsins og aðildarfélaga þess hafa einnig flutt fjölda erinda á viðburðum og málþingum og hugvekjur í messum um land allt. Á vegum félagsins hafa verið birtir fræðslupistlar í fjölmiðlum, auk þess sem merkjanleg aukning hefur verið á umferð um fræðsluefni á vef félagsins í mánuðinum. Við bindum vonir við að allt þetta skili þeim árangri að fleiri þekki einkenni og leiti aðstoðar ef þörf krefur. Því fyrr sem krabbamein greinist, því betri eru batahorfur.  

Sem betur fer taka fjölmargir undir mikilvægi þessa boðskapar með okkur og eru boðnir og búnir að taka þátt. Við viljum því koma á framfæri okkar hjartans þökkum til allra sem lögðu átakinu lið með einum eða öðrum hætti. Síðast en ekki síst þökkum við öllum þeim sem taka boðskapinn til sín og þeim sem kaupa og bera Bleiku slaufuna. Það er fyrir ykkar tilstilli að við getum áfram verið öflugur bakhjarl þeirra sem fá krabbamein og aðstandenda þeirra, stundað öflugar forvarnir og eflt rannsóknir sem vísa okkur veginn fram á við. Þannig getum við saman dregið úr áhrifum krabbameina á samfélagið. 

Markmið okkar er markmið okkar allra; að færri fái krabbamein, fleiri læknist eða lifi lengi og líði betur, með og eftir krabbamein. Takk fyrir ykkar ómetanlega framlag, lífið liggur við.