Beint í efni
Tanja Levý og Jökull Jónsson eru hönnuðir Bleiku slaufunnar 2026.

„Ég finn hnút­inn og þá breyt­ist allt“ - Bleika slauf­an 2026

Hönnuðir slaufunnar í ár eru listaparið Tanja Levý og Jökull Jónsson. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni.

Tanja og Jökull eiga og reka saman hönnunarstofuna Studio Pluto. Auk þess eru þau par og segjast nánast alltaf vera að kasta hugmyndum á milli sín. Októbermánuður í fyrra var áhrifamikill í lífi þeirra, en þá greindist Tanja með brjóstakrabbamein einungis 36 ára að aldri.

„Þetta var rétt eftir afmælisdaginn minn þar sem að ég finn hnútinn og þá breytist allt,“ segir Tanja um fyrstu einkennin, en hún var þá með ársgamalt barn þeirra á brjósti. „Ég hringdi símtal á heilsugæsluna, fékk tíma og það liðu örfáir dagar og þá var ég komin til læknis. Þaðan fór ég í Brjóstamiðstöð Landspítala þar sem voru tekin sýni og ég fór í myndatöku og það leið rosalega stuttur tími þarna á milli.“ Tanja segist afar þakklát fyrir að hafa ekki hummað einkennin fram af sér og segir það hafa skipt sköpum að þarna var Bleika slaufan nýfarin af stað.

Bleika slaufan og Sparislaufan 2026.

Bleika slaufan í ár veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni.

Heilandi að vinna að slaufunni samhliða krabbameinsmeðferðinni

Bleika slaufan 2026 varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferli þeirra, Tönju sem greinist og Jökuls sem aðstandanda. „Þegar hönnunarferlið hófst var ég byrjuð í lyfjameðferð, en sá tími var erfiðastur andlega og líkamlega,“ segir Tanja. „Slaufan er innblásin af krabbameinsvegferðinni og vísar í tímalínu bleika ársins okkar. Þetta var úrvinnsla úr tilfinningum okkar og því sem við vorum að ganga í gegnum og það var heilandi ferli að fá tækifæri til að setja þær tilfinningar í hönnunina, það hjálpaði okkur.“

Fremri borði slaufunnar er spegilsléttur og táknar tímabilið fyrir greininguna. Aftari borðinn er hrjúfur og stendur fyrir krabbameinsmeðferðina. Sprungan er tákn um áskoranir og ör á líkama og sál sem fylgja ferlinu öllu. Sprunguna prýðir bleikur steinn sem táknar styrk, von og samstöðu. „Við sóttum innblástur í japanska aðferð sem kallast Kintsugi,“ segir Jökull. „Þá eru brotnir hlutir límdir saman með gulli til að heiðra brotin, ekki til að fela þau heldur sýna þau. Brotin segja sögu hlutarins og hann er talinn ekkert síður fallegri þótt að brotin sjáist.“

Þá er litur slaufunnar sérvalinn til að vera áberandi. „Tanja ákvað í lyfjameðferðinni að klæða sig upp og bera höfuðið hátt og vera sýnileg og við vildum hafa slaufuna þannig líka,“ segir Jökull. „Hún er skærbleik og vel sýnileg og maður getur verið stoltur af því að bera hana.“

Heiður að fá að hanna slaufuna

Tanja segir dýrmætt að hafa getað leitað til Krabbameinsfélagsins eftir greininguna. „Það var í raun eitt fyrsta símtalið sem ég átti eftir að hafa fengið greininguna og ég var gripin svo vel þar og fjölskyldan mín líka.“ Þau Jökull eru sammála um að það sé þýðingarmikið fyrir þau að fá tækifæri til að hanna slaufuna. „Það er ótrúlega mikill heiður fyrir okkur að taka þátt í þessu og hafa fengið að hanna þetta samstöðutákn sem fjármagnar rannsóknir, eflir forvarnir, veitir ókeypis stuðning og er áminning um hvað það er mikilvægt að bregðast hratt við.“

Staðan í dag er þannig að Tanja hefur lokið meðferð á spítalanum, sem samanstóð af lyfjameðferð, aðgerð og geislum. „Núna er ég í endurhæfingu og uppbyggingu. Það er langhlaup og maður þarf að taka sér tíma í það og sýna sér mildi og þolinmæði, sem er ekki mín sterkasta hlið,“ segir Tanja og hlær. „Ég var með mynd í huganum um að við værum búin að hanna slaufuna og það væri komið að þessu og fólk myndi bera hana. Það hjálpaði mér í gegnum þetta, að sjá þetta fyrir mér gerast.“

Sparislaufan 2026 kemur í fallegri öskju.

Sparislaufan kemur í takmörkuðu upplagi og því er gott að tryggja sér eintak í tíma.

Sparislaufan

Líkt og fyrri ár var framleidd Sparislaufa sem er hálsmen og kemur í takmörkuðu upplagi.

Sparislaufan 2026 er stílhreint, gullhúðað koparhálsmen í samlitri keðju. Rétt eins og nælan er framhlið slaufunnar spegilslétt, en aftari hliðin er hrjúf og táknar tímabilið eftir greininguna og áskoranirnar sem fylgja því. Sprungan táknar rofið sem verður á lífinu og þrír dökkbleikir Swarovski steinar fegra sprunguna sem tákn um von, styrk og samstöðu.

Sparislaufan hefur oft selst upp á fyrstu dögum átaksins og því er gott að tryggja sér eintak í tíma.

Hvar fæst Bleika slaufan?

Bleika slaufan verður í sölu frá 30. september til 24. október í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins og hjá hátt í 400 söluaðilum um land allt.

Sparislaufan fæst í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, auk þess sem hún er til sölu í Mebu skartgripaverslun í Kringlunni og Smáralind.

Studio Pluto

Tanja kemur úr heimi leikmynda- og búningahönnunar og Jökull úr arkitektúr. Þau hafa unnið saman að allskonar verkefnum sem tengjast leikhúsi, kvikmyndum, viðburðum og rýmum. „Við höfum gaman af því að skoða hvað gerist þegar ólíkir miðlar og hugmyndir mætast,“ segja þau um samstarfið. „Okkur finnst gaman að fara út úr þægindarammanum, víkka sjóndeildarhringinn og prófa eitthvað sem við höfum ekki gert áður.“

Tanja og Jökull vinna saman, búa saman og segjast alltaf vera að kasta hugmyndum sín á milli „Oft byrjar verkefni bara á einhverju sem annað okkar segir upphátt. Hitt grípur það, bætir einhverju við, snýr því á hvolf og allt í einu er komin hugmynd sem hvorugt okkar hefði fundið upp eitt og sér.“ Þau segja samtalið eitt það skemmtilegasta við að vinna saman.

Nánar á vefsíðu Studio Pluto.