Beint í efni
Forsíðumynd - Hrafnhildur.

Ef ég hefði kom­ið einu til tveimur árum seinna hefð­um við ekki ver­ið að eiga sama sam­tal

Hrafnhildur greindist með sortuæxli eftir að hafa tekið eftir breytingum á fæðingarbletti. Hún er stolt af sjálfri sér að hafa hlustað á innsæið og leitað til læknis. 

„Ég er með mikið af fæðingarblettum, en þessi var svolítið öðruvísi,“ segir Hrafnhildur, sem greindist með sortuæxli. „Ég var búin að taka eftir breytingum á kannski tveggja, þriggja mánaða fresti, en var svo sem ekkert að kippa mér upp við það.“ Hún átti pantaðan tíma hjá húðlækni, en í kjölfarið á æfingarferð til Spánar, þar sem hún var mikið í sól, fór bletturinn að taka stöðugum breytingum.

„Bara á viku fresti var hann upphleyptur, eða litlaus og svo allt í einu litamikill og að breyta um lögun.“ Hún fór að hafa áhyggjur þegar hana fór að klæja í blettinn og ákvað að hringja á Húðlæknastöðina og freista þess að komast fyrr að, sem var auðsótt. 

„Bletturinn er bara tekinn, sendur í ræktun og svo fæ ég símtal að það hafi fundist sortuæxli og ég þurfi að fara í uppskurð,“ segir Hrafnhildur. Niðurstaða rannsókna var að meinið væri ekki búið að dreifa sér og teldist staðbundið. „Það eru bara einhverjar bestu fréttir sem að maður gæti fengið.“ Í kjölfarið tók við eftirlit sem stendur enn yfir í dag. 

Stolt af því að hafa hlustað á innsæið 

Hrafnhildur segir að í sínu tilviki hafi verið um að ræða minniháttar mein sem hefði getað verið meiriháttar. „Ég var bara í rauninni mjög heppin. Hún segir við mig í símann læknirinn að ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal. Ég veit ekki ennþá í dag hvað það þýðir, en ég ætla að búast við að það sé ekki gott.“ 

Hrafnhildur segist stolt af sjálfi sér að hafa hlustað á innsæið og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama. „Ef maður finnur eitthvað eða sér eitthvað, ekki hika við að fara og láta athuga það.“