Hannar þú Bleiku slaufuna 2027?
Leit er hafin að hönnuði Bleiku slaufunnar 2027. Frestur til að senda inn tillögur er til og með 16. nóvember.
Bleika slaufan er hönnunargripur með yfir 25 ára sögu og hafa margir af okkar færustu hönnuðum og gullsmiðum sett sinn svip á slaufuna.
Nú leitum við næsta hönnuðar til að ganga til liðs við okkur og eignast hlutdeild í arfleifð Bleiku slaufunnar. Með því að taka þátt styður þú við fjölbreytt starf Krabbameinsfélagsins sem allt miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lfii lengi eða njóti lífsins, með og eftir krabbamein.
- Til að taka þátt fyllir þú út formið hér
- Frestur til að senda inn tillögur er til og með 16. nóvember
- Fyrirspurnir berist á bleikaslaufan@krabb.is
Hönnuðir Bleiku slaufunnar 2026 voru Tanja Levý og Jökull Jónsson
Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju, en hún greindist með brjóstakrabbamein einungis 36 ára að aldri. Þau fléttuðu reynslu sína með einstökum hætti inn í hönnunina og unnu úr tilfinningum sínum í sköpunarferlinu.
