Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona
Auður Helgadóttir Möller greindist með ristilkrabbamein í mars 2025 og aftur ári síðar. Hún er að aðlagast breyttum aðstæðum og segir hvorki krabbameinið né stómað stjórna lífi sínu.
„Það eina sem ég fann eða sá voru blæðingar,“ segir Auður Helgadóttir Möller, sem greindist með krabbamein neðarlega í ristli í mars 2025. Hún hummaði fram af sér að leita til læknis fyrst um sinn. „Þetta var náttúrulega bara svo fjarstætt, að hugsa til þess að þetta myndi enda svona.“ Það fór svo að hún leitaði til heimilislæknis sem vísaði henni áfram til meltingarsérfræðings. „Þá kemur þetta strax í ljós.“ Í kjölfarið fór hún í fimm vikna geislameðferð, fimm daga vikunnar, auk lyfjameðferðar á töfluformi.
Við tók eftirlit sem lofaði góðu fyrst um sinn. Í febrúar á þessu ári kom þó annað í ljós. „Skurðlæknirinn minn sér að það er byrjað að vaxa eitthvað þykkildi og hún var ekki viss hvort það væri æxli eða bara örvefur eftir geislana.“ Auður fór í aðgerð sem fór ekki eins og hún átti von á. „Ég vakna eftir aðgerðina og þá hafði hún hætt við vegna þess að þá var þetta klárlega æxlið búið að vaxa aftur.“
Auður fór síðan í stómaaðgerð í apríl. „Það var ekkert annað í boði.“ Hún segir hvorki krabbameinið né stómað stjórna lífi sínu. „Ég er búin að fara í tattú og ég er búin að fara til útlanda. Ég er búin að fara ein í útilegu með hundinn minn. Ég er bara að aðlagast.“
Hún hvetur fólk jafnframt til að leita til læknis ef það finnur fyrir einkennum. „Þetta er náttúrulega svolítið feimnismál, en þú vilt frekar gera það heldur en að standa í því sem ég er búin að vera að gera. Ekki geyma það að fara til læknis, það er bara of dýrt.“
